Þitt er valið

Nú eru liðnir þrír mánuðir síðan ljóðskáldið Refaat Alareer, höfundur ljóðsins „If I must die“, var myrtur ásamt fjölskyldu sinni á heimili þeirra á Gaza. Svo virðist sem þessi svokallaða „hernaðaraðgerð“ Ísraela á hendur Palestínu hafi lítið farið í manngreinaálit hvort að einstaklingar séu meðlimir Hamas eða ekki, eins og flestum er nú orðið ljóst.…

By.

min read

Nú eru liðnir þrír mánuðir síðan ljóðskáldið Refaat Alareer, höfundur ljóðsins „If I must die“, var myrtur ásamt fjölskyldu sinni á heimili þeirra á Gaza.

Svo virðist sem þessi svokallaða „hernaðaraðgerð“ Ísraela á hendur Palestínu hafi lítið farið í manngreinaálit hvort að einstaklingar séu meðlimir Hamas eða ekki, eins og flestum er nú orðið ljóst.

En það sem virðist vera deginum ljósara, eftir því sem líður á þetta stríð gegn sakleysingjum og óbreyttum borgurum, er að Ísraelski herinn virðist vera að sigta út einstaklinga sem hafa nokkurn tímann dirfst að skrifa um frjálsa Palestínu. Þannig hefur fjöldinn allur af rithöfundum, blaðamönnum, skáldum, baráttufólki fyrir mannréttindum og öðrum verið slátrað, oft á tíðum með fjölskyldumeðlimum sínum.

Ef þetta er ekki þjóðarmorð, að drepa fjöldann allan af saklausu fólki ásamt því að koma yfir milljónum manns á vergang og sigta út menningararfleið þeirra, hvað er þetta þá?

Mannúðarsamtök, samtök blaðamanna, hjálparsamtök ásamt aragrúa af öðrum samtökum og einstaklingum hafa fordæmt þessa aðför Ísraelsríkis að heilli þjóð, en fyrir utan Suður-Afríku þá á ég enn eftir að sjá nokkra þjóð virkilega standa í hárinu á Ísrael. Við vitum jú að ríkisstjórnir eins og okkar eru of ragar til að segja eitt orð sem gæti komið þeim í óvild Bandaríkjastjórnar, sem hefur fjármagnað þetta stríð og virðist setja þrýsting á aðrar þjóðir að sitja á hliðarlínunni.

En hvað getur einstaklingurinn gert? Svo margir fórna höndum og segja að við getum ekkert gert. En það er einfaldlega ekki rétt.

Rapyd er stærsta fjártæknifyrirtæki Ísraels. Rapyd var tiltölulega lítið fyrirtæki áður en þeir fengu fúlgur fjár frá alþjóðlegum vogunarsjóðum til að kaupa Korta og svo Valitor hér á landi.

Rapyd var byggt á íslenskum grunni, eins þeir vilja svo oft minna á, og á mikla hagsmuni hér.

Rapyd græðir tugi milljarða á ári fyrir það eitt að þú, neytandinn, rennir korti þínu í posa verslanna þar sem Rapyd hefur samning við viðkomandi verslun.

Rapyd styður þessar aðfarir Ísrael að Palestínska fólkinu, og það með stolti, sama hversu mikið hinn íslenski forstjóri Rapyd Europe vill meina að þau geri það ekki.

En hvað getum við gert ef ríkisstjórnin einfaldlega hlustar ekki? Við getum valið með peningum okkar að styðja ekki Rapyd.

Við getum valið að velja eitthvað annað.

Hafþór Reynisson

||

WordPress Appliance - Powered by TurnKey Linux