Ræða Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur í Sniðgöngunni 2026

Kæru félagar,  Þjóðarmorð Ísraela á palestínsku þjóðinni hefur staðið yfir leynt og ljóst í heila öld. Þjóðarmorðingjarnir hafa frá upphafi réttlætt fjöldamorð sín, þjóðernishreinsanir, landrán, eignaupptöku og skemmdarverk á eignum og landi Palestinumanna með tungumáli nýlenduveldanna og hugmyndafræði vestrænnar yfirburðarhyggju. Og frá upphafi hefur Ísraelsríki notið verndar og stuðnings hins svokallaða alþjóðakerfis á meðan sjálfsákvörðunarréttur palestínsku…

By.

min read

Screenshot 2026-09-18 at 08.55.30

Kæru félagar, 

Þjóðarmorð Ísraela á palestínsku þjóðinni hefur staðið yfir leynt og ljóst í heila öld. Þjóðarmorðingjarnir hafa frá upphafi réttlætt fjöldamorð sín, þjóðernishreinsanir, landrán, eignaupptöku og skemmdarverk á eignum og landi Palestinumanna með tungumáli nýlenduveldanna og hugmyndafræði vestrænnar yfirburðarhyggju. 
Og frá upphafi hefur Ísraelsríki notið verndar og stuðnings hins svokallaða alþjóðakerfis á meðan sjálfsákvörðunarréttur palestínsku þjóðarinnar er fótum troðinn ár eftir ár, áratug eftir áratug. 

En heimsbyggðin er vöknuð, almenningur er vakandi og hefur tekið höndum saman til þess að krefjast réttlætis, frelsis og friðar fyrir palestínsku þjóðina. 

BDS-hreyfingin, Sniðgönguhreyfingin, á stóran þátt í því að tekist hefur að virkja samtakamátt almennings á jafn áhrifaríkan hátt og raun ber vitni. Hún myndar mótvægi við aðgerðarleysi ríkisstjórna heimsins gagnvart þjóðarmorði Ísraelsríkis á palestínsku þjóðinni.

Þökk sé samstöðu íslensku sniðgönguhreyfingarinnar hafa hundruð fyrirtækja hætt viðskiptum við Rapyd, tugir hafa hætt að selja hárvörlínuna Moroccanoil og innflutningur á ávöxtum og grænmeti frá Ísrael hefur hrunið nánast ofan í núll.

Samt hafa viðskipti Íslands við Ísrael snaraukist, fyrst og fremst vegna gagnaversins Verne sem þjónustar fyrirtækið Nebius sem aftur þjónustar ofurtölvuinnviði Ísraels. Ofurtölvuinnviði sem líkast til eru notaðir til að keyra gervigreindina sem Ísraelsher notar til þess að myrða almenna palestínska borgara á áður óþekktum skala. 

Sniðgangan sem við göngum í dag er hluti af mikilvægri baráttu almennings víða um heim gegn kerfisbundnum grimmdarverkum Ísraelsríkis og það er dýrmætt að sjá hvað við erum mörg sem tökum þátt í henni.

Samstaðan er okkar sterkasta vopn og það vita Ísrael og sökunautar þess glæpsamlega ríkis mætavel. Fordæmalaus samstaða almennings með málstað Palestínu hræðir þau –vegna þess að hún virkar. Og það er þess vegna sem hún hefur í síauknum mæli verið refsivædd víðs vegar um heiminn. 

Þannig var Francesca Albanese , sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda í Palestínu, beitt refsiaðgerðum af hálfu Bandaríkjastjórnar, fyrir að vera óhræddur og ótrúlega öflugur málsvari fyrir frjálsa Palestínu. 

Dómarar í alþjóðasakamáladómstólnum eru beittir sömu refsiaðgerðum vegna þess að þeir dirfast að vinna vinnuna sína og gefa út handtökutilskipanir gegn stríðsglæpamönnunum Netanyahu og Gallant.

Almennir borgarar í Bretlandi sem dirfast að halda á plaggötum sem tilgreina stuðning sinn við aðgerðahópinn Palestine Action og andstöðu sína við þjóðarmorðið á palestínsku þjóðinni hafa verið handteknir í tugþúsundatali. 

Þýska lögreglan beitir mótmælendur sem styðja Palestínu kerfisbundnu ofbeldi og þaggar niður í blaðamönnum sem fjalla um það með dyggri aðstoð Evrópusambandsins.

 Hér heima gefur lögreglan út ákæru á hendur þeim sem dirfðust að koma palestínskum fjölskyldum frá þjóðarmorði og hingað heim í öryggi og frið. Og áfram mætti lengi lengi telja. Allt eru þetta aðgerðir sem ætlað er að rjúfa samstöðuna, eyðileggja samtakamáttinn, sundra fjöldahreyfingunni. 

Um leið segir þetta okkur að samstaðan er að virka og að við megum ekki gefast upp. Við megum ekki leyfa þeim að sundra okkur. Við megum ekki leyfa þeim að draga okkur í dilka og flokka og minnka þannig kraftinn sem felst í samstöðunni, okkar sterkasta vopni. Því með stamstöðunni má flytja fjöll – og jafnvel ýta við óvirkum ríkisstjórnum.

Kæru fundargestir

Íslensk stjórnvöld kvittuðu á dögunum undir mjög óljósa yfirlýsingu tólf ríkja um einhvers konar aðgerðir gagnvart varningi frá landránsbyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu. Enn hefur ekkert komið fram um í hverju þessarar aðgerðir eiga að felast af Íslands hálfu. Það er í sjálfu sér skrýtið en um leið felst ákveðið tækifæri í þessum óskýrleika.

 Við getum til dæmis krafist þess að íslenska ríkið fylgi góðu fordæmi fjölda íslenskra fyrirtækja og segi upp samningi sínum við ísraelska fjármálafyrirtækið Rapyd vegna þess að það býður upp á fjármálaþjónustu í landránsbyggðum.

Við getum krafist rannsóknar á því hvaða þátt gagnaver Verne hér á landi eiga í því að keyra gervigreindina sem Ísraelsher notar helst. Ef hún leiðir í ljós að gagnaverin séu notuð til þess að auðvelda Ísraelsher að stunda kerfisbundin morð á palestínskum borgurum verður að draga forsvarsmenn þeirra til ábyrgðar fyrir dómstólum. 

Við getum líka krafist þess að ríkislögreglustjóri segi upp þjónustu ísraelska njósnafyrirtækisins Cellebrite og hefji tafarlaust rannsókn á því hvort þátttaka héraðssaksóknara í auglýsingu á vegum fyrirtækisins standist lög.  

Við getum krafist þess að skip danska flutningarisans Maersk fái ekki að leggjast við bryggju á Íslandi vegna þess að Maersk flytur vopn, vistir og skotfæri til Ísraels.

Við getum krafist alls þessa og meira til. Ekki bara vegna þessarar óljósu yfirlýsingar utanríkisráðherra um daginn, heldur líka vegna þess að alþjóðadómstóllinn í Haag hefur úrskurðað að hernám Palestínu sé andstætt alþjóðalögum, að því verði að ljúka sem fyrst og að öllum aðildarríkjum sameinuðu þjóðana beri skylda til þess að aðhafast ekkert sem gæti veitt áframhaldandi hernámi lögmæti. 

Við getum og eigum að krefjast þess að íslensk stjórnvöld beiti Ísrael þvingunaraðgerðum, að minnsta kosti á pari við þær aðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa nú þegar gripið til gegn Rússlandi. 

Og við getum nýtt okkur þetta svigrúm til þess að krefjast þess að íslensk stjórnvöld loki ekki aðeins á viðskipti með varning frá hernumdu svæðunum, heldur á öll viðskipti víð Ísrael.

Það getum við, vegna þess að það fyrirfinnst engin áreiðanleg leið til að aðgreina landránsvörur frá öðrum ísraelskum vörum. Vegna þess að það er ísraelska ríkið sjálft sem verndar og stendur að landráninu á Vesturbakkanum og víðar. Á því leikur enginn vafi. Og það er liður í þjóðarmorði Ísraela á Palestínumönnum, hryllilegum glæp, sem framinn er fyrir augunum á heimsbyggðinni allri.

Og það er líka glæpur að láta eins og þessir stríðsglæpir, þetta landrán, þetta þjóðarmorð Ísraela á palestínsku þjóðinni komi okkur Íslendingum og íslenskum stjórnvöldum ekki við.

Við vitum að þetta kemur okkur við. Þess vegna erum við hér.

Og það er ekki nóg, að íslensk stjórnvöld skuli hafa kvittað undir óljósa yfirlýsingu um að þau ætli að grípa til einhverra óljósra aðgerða gegn varningi frá landránsbyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu

Það er bara ekki nóg.

Það er ekki nóg að banna innflutning frá landránsbyggðum Ísraela í Palestínu en halda áfram viðskiptum og samskiptum við þann sem heldur hlífiskildi yfir landræningjunum og leggur þeim beinlínis lið við glæpaverk sín, alla daga, allan ársins hring, ár eftir ár – glæparíkinu Ísrael.

Nei, ríkisstjórn Íslands verður að grípa til tafarlausra og markvissra aðgerða, ekki bara gegn varningi frá landránsbyggðum Ísraela, heldur gegn Ísrael sjálfu. Aðgerða sem bíta. Aðgerða sem við vitum að virka, eins og viðskiptabann, vopnasölubann og þær aðgerðir sem Haag hópurinn hefur ráðist í.

Fyrst þá getum við sagt að viðurkenning Íslands á sjálfstæðu ríki Palestínu sé eitthvað meira en orðin tóm.

Fyrst þá getum við sagt að Ísland hafi gert eitthvað til þess að reyna að stöðva þjóðarmorðið.

Kæru félagar.

Það krefst þolinmæði, hugrekkis og þrautsegju að ná settu marki og andstæðingar okkar reyna eftir fremsta mætti að þreyta okkur og hræða okkur frá því að halda áfram.

En ef við gefumst ekki upp eigum við sigurinn vísan því stríðsglæpir fyrnast aldrei.

Glæpir gegn mannkyni fyrnast aldrei.

 Þjóðarmorð fyrnist aldrei.

 Og baráttan fyrir því að draga stríðsglæpamennina fyrir dóm fyrnist aldrei.

 Takk fyrir og lifi frjáls Palestína!

WordPress Appliance - Powered by TurnKey Linux